atveisla :)

Ahverju er ég enn þá vakandi kl.3:30 að nóttu til, svona er þetta búið að vera síðan skólarútínan fór úr skorðum held það hafi bara verið nokkur sannleikskorn í stráknum (sem er alltaf með smá glott og talandi í símann við sjálfan sig) og spurði hvort ég væri vampíra....
vaka þær ekki á næturnar og sofa á daginn. En nú spyrja sumir lesendur sjálfan sig eflaust var hún spurð hvort hún væri vampíra? já fólk ég var spurð að þessu þegar ég sat í sakleysi mínu hjá tölvum bókasafnsins. Reynslan hefur sínt mér að ég verð að fara að hætta að leggja leið mína á bókó, ég er einsog segull hvað varðar óvenjulegt fólk þegar ég er á bókó. Og ég er greinilega oft þarna fyrst ég er farin að gefa bókasafninu nikkneimið BÓKÓ. Dýrka steinunni og elínu bara svo mikið.
Hlakkar ógó mikið til á morgun alveg brillí hugmynd að hafa indverkst matarboð á La Anna, er sko byrjuð að spara pláss í mallakút. Og get ekki beðið eftir að borða Naan brauðið...hef ekki smakkað það síðan ég var í Indlandi og þá var það borðað með hverri máltíð á hverjum deigi.
Og líka hinn daginn veisla hjá stútentnum Söndru og ef ég þekki mömmu hennar rétt þá verður engu til sparað.
